Þegar Hrifla kom til okkar 2 mánaða gömul hljóp hún til hinna hundanna á heimilinu og sagði við þá “ ég heiti Töfra Hólmfríður Hrifla og ætla að eiga heima hérna og ráða öllu”. Þetta fór samt ekki alveg á þennan veg því Snögg var foringinn í hópnum og varð Hrifla að lúffa fyrir henni.
Hrifla er ákveðin og forvitin en einnig varkár. Hún er eini hundurinn á heimilinu sem er ekki minn hundur því hún valdi eiginmann minn sem húsbónda og sér ekki sólina fyrir honum. Hún er ákaflega þægilegur hundur, hlýðin og mikil kelirófa. Þegar Hrifla fer með mér og hinum hundunum á göngu er hún alltaf að svipast um eftir eiginmanni mínum og þegar hún telur að ég sé ekki að fylgjast með henni hleypur hún eins hratt og hún getur til baka að bílnum eða heim til okkar.